Halda sama lagi áfram
Veldu Fader: hlé neðst / halda áfram efst. Við 10% eða lægra fer lag í hlé. Við 30% eða hærra heldur sama lag áfram.
FYRSTA GERÐ · SKAGA PLAY 2.119 OG NÝRRA
Skref fyrir skref: tengdu fyrsta RØDECaster Pro við Skaga Play, lærðu takka og fadera og stjórnaðu spilun, jinglum, óskalögum, streymi og upptökum. Þessi síða er fyrir upprunalega Pro-borðið, ekki Pro II.
01 · BORÐIÐ
02 · SKAGA PLAY
Skaga Play opnar eitt MIDI-inntak í einu. Pro og Pro II halda aðskildum vörpunum. Þegar skipt er um prófíl aftengist MIDI; veldu rétt tæki og Tengja aftur. Að loka stillingaglugganum aftengir ekki borðið.
03 · MIDI LEARN
Til að breyta aðgerð velurðu annað úr listanum við vörpunina. Læra aftur tengir hana við annan stjórnanda. Fjarlægja eyðir vörpuninni. Hámarkið er 128 varpanir í hverjum prófíl.
Note, CC og Pitch Bend eru studd. Notaðu raunveruleg boð frá borðinu með Læra; ekki afrita rásar- eða CC-númer úr Pro II leiðbeiningum. Tveir takkar sem senda sömu tegund, rás og númer stjórna sömu vörpun. Ný vörpun á sama auðkenni kemur í stað þeirrar fyrri.
04 · FADER START
Veldu Fader: hlé neðst / halda áfram efst. Við 10% eða lægra fer lag í hlé. Við 30% eða hærra heldur sama lag áfram.
Veldu Fader: stöðva neðst / spila næsta efst. Við 10% eða lægra stöðvast núverandi lag. Við 30% eða hærra byrjar næsta tiltæka lag úr röðinni.
Á milli 10% og 30% helst síðasta staða. Þetta eru hlutföll MIDI-gildis, ekki tölurnar 10 og 30 í hráum MIDI-boðum. CC notar 0–127: neðri mörk 0–12 og efri mörk 39–127. Pitch Bend notar sömu hlutföll á 0–16383.
Auto helst virkt ef það var virkt áður. Faderinn heldur spilun viljandi í hléi eða stöðvaðri meðan hann er niðri. Aðgerðin skiptir ekki yfir í Manual. Venjulegur Stöðva-takki og Stöðva eftir lag eru aðrar aðgerðir.
Veldu frekar Hljóðstyrkur spilara / fader eða Hljóðstyrkur hljóðnema / fader. Lærðu faderinn og prófaðu allt sviðið. Einn fader fær eina vörpun og er því ekki bæði samfelld styrkstýring og fader-start í þessum glugga. Fader getur einnig breytt hljóðrás á borðinu sjálfu; prófaðu bæði það sem heyrist og MIDI-stýringuna.
05 · TAKKAR OG HLJÓÐ
RØDE styður MIDI-boð frá Sound Pads á fyrstu gerðinni. Lærðu boð frá hverjum pad í Skaga Play. Ekki gera ráð fyrir Pro II SMART Pad-valmyndum á þessu borði.
| Markmið | Aðgerð í Skaga Play | Undirbúningur |
|---|---|---|
| Sjálfvirk spilun | Virkja Auto | Hafðu efni tilbúið í röð eða dagskrá |
| Handvirk spilun | Virkja Manual | Sér takki; lag í spilun heldur áfram |
| Jingill | Jingill 1–64 | Settu hljóð á samsvarandi jinglareit fyrst |
| Forhlustun | Forhlusta valið lag / Stöðva forhlustun | Veldu lag og rétt forhlustunarúttak |
| Stöðva eftir lag | Virkja stöðvun eftir lagið í spilun | Núverandi lag klárast áður en stöðvað er |
| Hljóðnemi | Virkja hljóðnema / opna eða loka Lock to talk | Veldu rétt hljóðinntak fyrst |
Til dæmis: lærðu fyrsta pad sem Virkja Auto og annan sem Virkja Manual. Lokaðu glugganum og prófaðu. Hamaskipti þurfa ekki opinn valglugga.
Push to talk þarf bæði þrýsting og sleppingu: Note On/Off eða CC með jákvæðu gildi við þrýsting og núlli við sleppingu. Ef pad sendir aðeins eitt boð skaltu nota sérstakar Lock to talk aðgerðir í staðinn. Athugaðu boðin í MIDI-glugganum áður en þú treystir á sleppingu.
06 · ÓSKALÖG
Móttökustilling krefst heimildar til að breyta safni eða stillingum. Afgreiðsla beiðna krefst spilunarheimildar. MIDI veitir ekki viðbótarheimildir. Þegar margar samþykktar óskir bíða fer eldri beiðni á undan nýrri samkvæmt röðun óskalaga.
07 · ÚTSENDING OG UPPTAKA
Ræsing upptöku opnar upptökuþjónustuna ef þarf og notar síðast vistaðar stillingar. Spilun tónlistar heldur áfram. Leyfi, hljóðgjafi og upptökumappa þurfa að vera í lagi.
Þú getur líka lært að sýna eða fela Streymi-, Upptöku-, Hlustenda- og Áhorfendaspjöld, opna MIDI-stillingar og opna aukaskjá með síðustu uppsetningu. Uppsetningarheimild þarf fyrir spjaldaskipti og aukaskjá.
08 · VISTUN
Vörpun, Pro-prófíll, virkjunarval og síðast valið MIDI-tæki vistast staðbundið. Eftir Tengja reynir Skaga Play að tengjast sama tæki aftur við ræsingu, eftir uppfærslu og þegar USB kemur aftur. Leit fer fram á um fimm sekúndna fresti þegar endurtengingar er þörf.
Aftengja stöðvar þessa sjálfvirku endurtengingu þar til þú velur Tengja aftur. Þegar þú skiptir milli Pro og Pro II þarftu líka að velja tæki og tengja. Vörpun hvors borðs helst. Ekki gera ráð fyrir að annað Windows-notandasvæði eða önnur tölva hafi sömu stillingar.
09 · BILANAGREINING
Athugaðu gagnasnúru, USB-tengi, fastbúnað og MIDI Control á borðinu. Ýttu á Leita aftur. Hljóð yfir USB sannar ekki að MIDI sé virkt. Lokaðu öðrum forritum sem halda MIDI-tækinu opnu.
Opnaðu MIDI-gluggann og ýttu á takkann. Ef engin boð birtast þarf að leysa sendinguna frá borðinu. Ef boð birtast skaltu athuga Virkja MIDI-stjórnun, valinn Pro-prófíl, lærða vörpun og aðgangsheimildir.
Veldu fader-aðgerð og hreyfðu faderinn eftir Læra. Samfelld stýring þarf CC eða Pitch Bend, ekki eingöngu Note. Veldu Snúa fader við ef stefnan er röng. Athugaðu að bankasían sé ekki að hunsa CC 0 sem þú þarft.
Styrkvörpun lækkar aðeins styrk. Veldu Fader: hlé neðst / halda áfram efst eða Fader: stöðva neðst / spila næsta efst. Prófaðu 10% og 30% mörkin og athugaðu hvort röðin hafi næsta lag.
Stjórnandi eða notandi með safn-/stillingaheimild þarf að gera breytinguna. Athugaðu stöðu í Óskalög → Óskasíða og hvort innbyggður streymisþjónn sé í gangi. Takki getur ekki lagað lokað port eða óaðgengilega opinbera slóð.
Staðfestu að þú hafir notað Tengja og ekki Aftengja síðast. Veldu sama prófíl og tæki, tengdu einu sinni og leyfðu næstu leit að finna borðið. Ef fleiri tæki hafa sama auðkenni þarf að velja handvirkt.
10 · LOKAPRÓFUN
Skaga Play-stýringin hefur verið prófuð með hermdum MIDI-skilaboðum. Prófun á raunverulegu Pro 1 borði er enn nauðsynleg til að staðfesta þína fastbúnaðarútgáfu, boð og hljóðleið.
MIDI Control og valmyndarslóð borðsins: RØDE · fastbúnaður 2.1.2. Sound Pads og MIDI: RØDE · MIDI Triggers for RØDECaster Pro. Aðgerðir, heimildir og þröskuldar hér lýsa Skaga Play.